Það sem við tökum að okkur

Sex verk sem húseigendur í Reykjavík hringja oftast út af. Öll unnin af löggiltum pípurum, með verði og dagsetningu áður en byrjað er.

Einangruð lögn með koparfittingum og kúluloka í tæknirými.

Leki og vatnstjón

Við finnum lekann, stöðvum hann og gerum við það sem er farið. Líka lekana sem sjást ekki fyrr en rakinn kemur upp í parketi eða á vegg.

  • Leki í veggjum, gólfi og lögnum
  • Ofnar, blöndunartæki og salerni
  • Endurnýjun á þreyttum stofnlögnum
Skólplagnir úr PVC lagðar og tengdar í uppgröfnum jarðvegi.

Stíflur og skólplagnir

Stíflan er leyst og svo er skoðað af hverju hún myndaðist. Ef lögnin er komin á tíma segjum við þér það frekar en að selja þér sömu ferðina aftur.

  • Stíflulosun innanhúss og utan
  • Endurnýjun á skólp- og frárennslislögnum
  • Niðurföll, brunnar og tengingar
Stútar fyrir sturtu og blöndunartæki tilbúnir í flísalögðu baðherbergi.

Baðherbergi

Allur lagnahlutinn, frá því að rifið er og þar til tækin eru komin upp og prófuð. Við vinnum með flísara og smið svo verkið stoppi ekki á milli iðngreina.

  • Nýjar lagnir og niðurföll
  • Sturtur, baðkör, salerni og handlaugar
  • Uppsetning og frágangur á tækjum
Snjóbræðslulykkjur lagðar yfir alla innkeyrsluna fyrir steypu.

Snjóbræðsla

Lagnir í innkeyrslur, stéttir og tröppur, lagðar jafnt svo enginn blettur sitji eftir með klaka. Best er að leggja áður en hellulagt er eða steypt.

  • Ný snjóbræðslukerfi
  • Tengingar við hitakerfi og stýringar
  • Viðgerðir á eldri lögnum
Einangraðar útilagnir festar meðfram húsvegg og inn í bygginguna.

Lagnir í garðinum

Frárennsli, útikranar og lagnir að bílskúr eða skjólvegg. Við röðum verkinu þannig að ekki þurfi að grafa upp sama blettinn tvisvar.

  • Frárennsli og drenlagnir
  • Útikranar og lagnir að útihúsum
  • Samhæfing við hellulagningu og garðvinnu
Inntaksgrind með mælum, lokum og einangraðri lögn á vegg.

Hitakerfi og inntök

Ofnalagnir, tengigrindur og inntök. Gamalt kerfi sem hitar illa er oftast hægt að laga án þess að rífa allt húsið í sundur.

  • Ofnar, ofnalokar og stillingar
  • Tengigrindur og inntök
  • Endurnýjun á hitalögnum

Þetta fylgir alltaf, óháð stærð verksins

Áður en byrjað er

  • Skoðun á staðnum og hreinskilið mat
  • Skrifleg verklýsing og verð
  • Dagsetning fyrir upphaf og verklok
  • Ekkert rifið fyrr en þú hefur samþykkt

Á meðan og eftir á

  • Þrifið eftir okkur í lok hvers dags
  • Látið vita samdægurs ef eitthvað breytist
  • Verkið prófað áður en því er skilað
  • Reikningur sem passar við tilboðið

Segðu okkur hvað er í gangi

Lýstu verkinu í stuttu máli. Við svörum með næstu skrefum, tíma og verði áður en nokkuð er rifið.

Sími 769 2122 Faglagnir ehf · Reykjavík og nágrenni

Ertu með mynd af því sem er í gangi? Sendu hana á Facebook

Hringja: 769 2122
Vinsamlegast skrifaðu nafnið þitt.
Við þurfum símanúmer til að hringja til baka.
Hjálpar okkur að meta hvenær við komumst.
Leki, stífla, baðherbergi, lagnir í garðinn, eitthvað annað. Segðu okkur í stuttu máli hvað þarf að gera.

Við notum upplýsingarnar eingöngu til að svara fyrirspurninni.

Hringja: 769 2122