Tími og verð áður en verkið byrjar.

Löggiltir píparar í Reykjavík. Við tökum að okkur leka, stíflur, baðherbergi og lagnir í garðinum.

Snjóbræðslulagnir lagðar í jöfnum lykkjum í innkeyrslu, tilbúnar undir steypu.

Þrennt sem þú getur gengið að

Fagmennska

Faglagnir ehf er rekið af löggiltum pípurum. Verkið er unnið eftir réttum aðferðum og frágangurinn stenst úttekt, líka það sem hverfur á bak við vegg.

Skipulag

Þú færð verklýsingu og verð skriflega áður en byrjað er. Engir liðir birtast á reikningnum sem þú hefur ekki séð áður.

Tímalína

Umsaminn dagur stendur. Breytist eitthvað heyrir þú það frá okkur samdægurs, ekki þegar verkið er komið fram yfir.

Verk sem eru þegar kláruð

Myndir úr eigin verkum. Skólplagnir, snjóbræðsla, baðherbergi og inntök.

Skólplagnir úr appelsínugulu PVC lagðar og tengdar í uppgröfnum grunni.
Snjóbræðslulagnir festar niður í innkeyrslu áður en steypt er yfir.
Blöndunartæki og stútar tengd í flísalögðu baðherbergi.
Nýtt inntak með hitamælum, lokum og tengigrind á vegg.
Lagnaklefi með þensluíláti, lokum og einangruðum lögnum.

Fleiri verk, með lýsingu á því hvað var gert og hvernig gengið var frá.

Skoða verkefnin

Svona gengur verkið fyrir sig

Skoðun

Þú hringir eða sendir mynd. Við komum á staðinn, finnum hvað er raunverulega að og segjum þér það hreint út.

Verðtilboð

Þú færð verklýsingu og verð skriflega, ásamt dagsetningu. Ekkert er rifið fyrr en þú hefur samþykkt.

Framkvæmd

Við mætum á umsömdum degi, vinnum verkið og göngum frá eftir okkur í lok hvers dags. Þú veist alltaf hvar við erum stödd.

Frágangur

Verkinu er skilað fullfrágengnu og prófuðu. Reikningurinn passar við tilboðið sem þú samþykktir.

Algengar spurningar

Finnurðu ekki svarið? Hringdu í 769 2122, það er fljótlegast.

Hvað kostar að fá pípara heim?

Það fer eftir verkinu. Minni viðgerðir eru unnar í tímavinnu og í stærri verkum bjóðum við fast verð. Í báðum tilvikum færðu töluna áður en byrjað er, ekki eftir á.

Það lekur núna. Hvað á ég að gera?

Lokaðu fyrir inntakskranann ef þú kemst að honum og hringdu í 769 2122. Lýstu því hvar lekinn er og hvað hefur blotnað.

Bráðir lekar fara fremst í röðina hjá okkur, því tjónið vex á meðan beðið er.

Eruð þið löggiltir?

Já. Faglagnir ehf er rekið af löggiltum pípurum og verkin eru unnin þannig að þau standist úttekt.

Takið þið að ykkur heil baðherbergi?

Já. Við sjáum um lagnahlutann frá því að rifið er og þar til gengið hefur verið frá tækjum. Þegar þarf flísara, smið eða rafvirkja vinnum við með þeim svo verkið stoppi ekki.

Leggið þið snjóbræðslu og lagnir í garðinn?

Já. Snjóbræðsla, skólplagnir og frárennsli. Best er að hafa samband áður en hellulagt er eða steypt yfir, þá er allt lagt í réttri röð og ekkert þarf að rífa upp aftur.

Hvaða svæði þjónustið þið?

Reykjavík og nágrenni. Ef þú ert rétt utan við, hringdu samt, við segjum þér strax hvort við komumst.

Segðu okkur hvað er í gangi

Lýstu verkinu í stuttu máli. Við svörum með næstu skrefum, tíma og verði áður en nokkuð er rifið.

Sími 769 2122 Faglagnir ehf · Reykjavík og nágrenni

Ertu með mynd af því sem er í gangi? Sendu hana á Facebook

Hringja: 769 2122
Vinsamlegast skrifaðu nafnið þitt.
Við þurfum símanúmer til að hringja til baka.
Hjálpar okkur að meta hvenær við komumst.
Leki, stífla, baðherbergi, lagnir í garðinn, eitthvað annað. Segðu okkur í stuttu máli hvað þarf að gera.

Við notum upplýsingarnar eingöngu til að svara fyrirspurninni.

Hringja: 769 2122